Um okkur

Baldur Einarsson
Markþjálfi, stjórnenda- og viðskiptamarkþjálfi
Emotionally Focused Therapy stig: I,II,III
Baldur hefur lokið námi í markþjálfun, stjórnenda- og viðskiptamarkþjálfun. frá Fowler International Academy of Professional Coaching.
Baldur er einnig að nema viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.
Á vormánuðum ársins 2018 bætti Baldur við sig námskeiðum I, II og III í Emotionally Focused Therapy grunnnámskeiðið tók hann hér á landi en stig II og III tók hann á Ítalíu.
EFT-meðferðarnálgunin er gagnreynd meðferðartækni sem notuð er í samtalsmeðferð og þróuð af Dr. Susan M. Johnson sem er leiðandi í parameðferð. Rannsóknir hafa sýnt að árangur slíkrar meðferðar er allt að 75%.
Baldur er einnig starfandi Prestur/Pastor og hefur starfað sem slíkur í 10 ár. Hann hefur sótt fjöldan allan af námskeiðum í sálgæslu og haldið margar ráðstefnur og fyrirlestra um málefnið bæði hér á landi sem og erlendis, t.a.m., í Englandi, Írlandi, Frakklandi, Svíþjóð, Noregi, Canada og víða í Bandaríkjunum.
Baldur hefur því áralanga reynslu af því að vinna með fólki og fjölskyldum.
Sérstakar áherslur:
Einstaklings-og hjónaráðgjöf, hvatningarráðgjöf, sorg og áföll vegna vanrækslu, andlegs- og líkamlegs ofbeldis, auk vinnu með alkóhólistum, fíklum og aðstandendum þeirra. Hann leggur áherslu á samskipti og að læra að þekkja inn á tilfinningar sínar, greiða úr samskiptaörðuleikum og öðlast andlegt heilbrigði.
Fyrirtækjaráðgjöf:
Auka tilfinningagreind meðal starfsfólks, áföll innan fyrirtækja, uppsagnir, dauðsföll, ábyrgð yfirmanna og starfsmanna, að setja heilbrigð mörk milli fólks innan fyrirtækisins.

Barbara H. Þórðardóttir
Fjölskyldufræðingur Diplóma á mastersstigi
Grunnskólakennari b.ed.
Áfallafræði I og II
Emotionally Focused Therapy I,II,III
Barbara er með b.ed., gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið námi í Fjölskyldfræðum við Endurmenntun Háskóla Íslands sem er tveggja ára nám á meistarastigi.
Barbara hefur lokið tveimur gráðum í áfallafræðum TRM (Trauma Resiliency Model – Stig 1 og 2) sem haldin voru af “The Trauma Resource Institute”. Aðferðarfræðin miðar að því að vinna með fólki sem hefur upplifað áföll og áfallastreitu.
Barbara hefur einnig sérhæft sig í meðferðarnálgun Susan M. Johnson “Emotional Focused Couple Therapy” sem er sú aðferð innan fjölskyldumeðferðarinnar sem er hvað mest rannsökuð í dag.
Barbara hefur einnig sótt margar ráðstefnur um alkóhólisma, áhrif hans á alkóhólistann sjálfan og fjölskyldu hans.
Barbara hefur haldið fjölda ráðstefna, fyrirlestra og námskeiða á Íslandi og erlendis m.a., Englandi og Frakklandi. Barbara hefur áralanga reynslu af því að vinna með börnum og fólki.
Sérstakar áherslur: Einstaklings- hjóna og paravinna, samskipti, áföll, sorg og kvíði, afleiðingar andlegs og líkamlegs ofbeldis, auk vinnu með alkóhólistum og aðstandendum þeirra.