5. Ástartungumálin eftir Gary Chapman
Baldur Einarsson & Barbara H. Þórðardóttir • July 22, 2019

Það er til betri leið
Ástartungumálin 5 eftir Gary Chapman eru frábært verkefæri til þess að vinna með ástina í hjóna-og parsambandinu. Vandinn í parsambandinu er oft sá að tala ástartungumál sem við skiljum en skiljum svo ekkert í því að maki okkar skilur það ekki.
Ástartunugmálin eru fimm og yfirleitt er það eitt sem lætur allt tikka fyrir okkur. Við höfum svo oft séð að makar reyna að tala ástartungumálið sem hinn makinn skilur ekkert í.
Við það myndast vonbrigði þar sem makinn upplifir að það sem hann gerir sé ekki metið. Málið er að það er ekki að makinn meti ekki það sem er gert heldur talar hann ekki þetta tungumál. Svona eins og að reyna að tala íslensku við einhvern í þýskalandi.
Lærum hvert er ástartungumál maka okkar svo við getum sýnt maka okkar elsku eins og hann skilur.
Ástartungumálin 5
- Snerting
- Uppörvandi ora
- Gjafir
- Gæðastundir
- Þjónusta
Linkar:
Share

Við viljum stuðla að heilbrigði fjölskyldna að það séu tengsl í fjölskyldum. Áhættuhegðun unglinga er stórt vandamál í samfélaginu okkar og við þurfum að losa okkur við meðvirknina til að geta horfst í augu við vandan og tekið á honum. Við fengum frábæran gest til okkar hana Guðrúnu Ágústu en hjartað hennar brennur fyrir börnum með áhættuhegðun og er okkur sannur heiður að fá að ræða við hana. Guðrún á sér langa sögu í vinnu með unglingum og vann meðal annars uppá Vogi á bangsadeildinni. Námskeið unglingar með áhættuhegðun er framundan og er það hugsað fyrir foreldra með börn í vanda. Panta tíma Guðrún Ágústa Barbara H. Þórðardóttir Baldur Einarsson Linkar Instagram Lausnarinnar Instagram Vonráðgjöf á facebook Lausnin á facebook

Samskipti er það sem skiptir mestu máli fyrir okkur sem einstaklinga í samfélagi sem er orðið velrænt. Við töluðum um parsambandið, fjölskylduna, tengslavanda og sjálfsmynd. Sameining Lausnarinnar og Von hvað ber það í skauti sér. Við viljum sjá byltingu í samskiptum í tengslum og tengslamiðuðu tungumáli! Námskeiðstenglar: Haltu mér þétt Samskipti og sjálfsmynd Panta tíma í ráðgjöf: Theodór Francis Barbara H. Þórðardóttir Baldur Einarsson

Baldur og Barbara fjalla hérna um leyndardóma þess að halda ástinni lifandi út frá vísindum ástarinnar. Samskipti eru svo mikilvæg ekki hvað við segjum endilega meira hvernig við segjum það. Tengsl eru mikilvægasti partur samskipta og það er svo mikilvægt að við leggjum áherslu á þau meira en rétt og rangt. Það skiptir ekki máli hver hefur rétt fyrir sér heldur frekar hver er fyrri til að tengja sig! Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! https://www.instagram.com/lausnin.is/ https://www.instagram.com/vonradgjof.is/

LETS talk about sex! Kynlíf er eitthvað sem er gríðarlega mikilvægur hluti af góðu hjónabandi. Það er talað um að það séu til þrjár mismunandi gerðir af kynlifi sem við ræðum aðeins hérna. Við tölum líka um sjokkerandi staðreyndir eins og "karlmönnum leiðist tengsla laust kynlíf". Við erum opin fyrir umræðunni og spurningum. Njótið og deilið podcastinu okkar að vild Minnum á næsta námskeið þann 5. Október Linkar: Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! https://www.instagram.com/vonradgjof.is/

Lausnin fjölskyldu- og áfallamiðstöð og Von ráðgjöf hafa sameinað starfsemi sína undir merkjum Lausnarinnar. Við sameininguna verður til öflug ráðgjafastofa með breiða faglega nálgun. Baldur Einarsson, annar af tveimur stofnendum “Von ráðgjöf”, tekur við starfi framkvæmdastjóra Lausnarinnar við sameininguna. Theodór Francis sem gengt hefur starfi framkvæmdastjóra undanfarin ár tekur við formennsku stjórnar í stað Kjartans Pálmasonar sem hverfur úr stjórn fyrirtækisins og hópi eiganda. Lausnin fjölskyldu- og áfallamiðstöð mun áfram kappkosta að vera leiðandi afl í klínískri vinnu með einstaklingum, fjölskyldum og innan fyrirtækja en í starfsliði fyrirtækisins er einvala lið af þaulreyndum fagaðilum.

Í þessum þætti ræðum við um hvernig við eigum að nálgast maka okkar út frá grunnþörf okkar en ekki yfirborðs tilfinningunni. Tjúnnið inn and enjoy :) Njótið og deilið podcastinu okkar að vild Minnum á næsta námskeið þann 14. september Linkar: Panta tíma hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spyrðu spurningar og kastaðu á okkur "læki"! Instagram

Í þessum þætti ætlum við að ræða hvernig við getum farið aftur í erfið augnablik og lagað sambandið okkar. Það er svo mikið atriði að báðir aðila upplifi sig örugga til að heimasækja þessi augnablik saman án þess að fara inní "djöflasamtölin". Njótið og deilið podcastinu okkar að vild Linkar: Instagram Panta tíma í ráðgjöf hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Spurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!

Meyru svæðin eru svæðin sem færa samtalið yfir í "djöflasamtalið". Þegar snert er við þeim þá fer ég í að verja mig ef ég er "pursuer" eða sanna fyrir þér að ég sé ekki sökudólgur. Meðan "withdrawer" dregur sig til hlés og frýs því sársaukin segir honum að forða sér. Raunverulega þá eru báðir aðilar að upplifa sársauka og í stað þess að deila honum. Berskjöldun er það sem virkar hér og við lærum með tímanum að treysta ef við veljum að deila tilfinningu okkar án þess að ásaka maka eða kenna honum um. Við lærum svo að standa saman gegn neikvæða spíralnum og gera hann að andstæðingnum og saman berjumst við gegn því í stað þess að berjast innbyrðis. Námskeiði "Haltu mér þétt" verður haldið næst þann 14. september 2019 Linkar: Panta tíma í hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Instagram Spurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!

Þessi þáttur flettir ofan af því sem er stærsti óvinur hjónabandsins og parsambandsins. Þessi þáttur kennir okkur að sjá hvar við erum að valda óöryggi. Samskiptin okkar eru lærð hegðun og það tekur tíma að læra nýjar venjur. Mikilvægast er að hjón og pör fari saman í þessa vinnu. Til að panta á námskeið eða í ráðgjöf: Panta tíma í hjá Baldri Panta tíma hjá Barböru Instagram Spurðu okkur spurningu og hentu á okkur "læki"!